Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun íslenskra ungmenna af mótun eigin náms- og starfsferils í hnattvæddum heimi í því skyni að öðlast innsýn í starfstengda sjálfsmynd þeirra. Frásagnarnálgun McAdams (2015) var beitt þegar tekin voru viðtöl við sex 22 ára ungmenni. Niðurstöður sýna að marg- og síbreytileiki vinnumarkaðar, minna starfsöryggi og hverfult efnahagsástand veldur þátttakendum óvissu og óöryggi sem flækir starfsferilsþróun þeirra. Heimssýn þeirra er hnattræn en staðbundin menning er þó ríkjandi í starfstengdri sjálfssögu þeirra.

Sagan byggist á hefðbundnum gildum fjölskyldu og nærsamfélags sem birtast í frásögnum af eigin vinnusemi, stundvísi, samskiptahæfni og mikilvægi tengslanets. Niðurstöðunum er ætlað að auka skilning á starfstengdri sjálfsmynd ungs fólks og áskorunum við mótun náms- og starfsferils í hnattvæddum heimi.

Höfundar: Soffía Valdimarsdóttir, Sif Einarsdóttir og Hrafnhildur V. Kjartansdóttir

► Sjá grein

Um höfunda

Soffía Valdimarsdóttir er aðjunkt í náms- og starfsráðgjöf við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk B.A.-prófi í þjóðfræði og M.A.-gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Fræðilegur áhugi Soffíu er þverfaglegur og snýr helst að því hvernig einstaklingar og hópar finna sér stað og gera sig gildandi á eigin forsendum í samfélögum og aðstæðum.

Sif Einarsdóttir er prófessor við námsbraut í náms- og starfsráðgjöf á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Hún er með doktorsgráðu í ráðgefandi sálfræði frá University of Illinois, Champaign – Urbana. Sif hefur stundað rannsóknir á starfsáhuga fyrst og fremst, sálfræðilegu mati og einnig á náms- og starfsferli ólíkra samfélagshópa.

Hrafnhildur V. Kjartansdóttir er náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands. Hún lauk B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1994 og M.A.-gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands 2010. Fræðilegur áhugi hennar snýr einkum að brotthvarfi úr námi og menntun fullorðinna.

Efnisorð: íslensk ungmenni; starfstengd sjálfsmynd; sjálfssaga; hnattræn heimssýn; staðbundin vinnuviðhorf