GREINAKALL 2026 – 2027

Timarit um uppeldi og menntun er fræðilegt tímarit á sviði menntavísinda sem gefið er út tvisvar á ári, annaðhvort sem almennt rit eða sem sérrit.

 

Sérrit TUM tileinkað niðurstöðum PISA 2025

Stefnt er að útgáfu sérrits á vegum TUM um niðurstöður PISA 2025 í lok árs 2027. Í ritinu verður rýnt í afmarkaða þætti í niðurstöðum fyrir Ísland og þær ræddar í breiðara samhengi.

Megin markmið sérritsins er að nýta þá umfangsmiklu könnun sem PISA er til að draga lærdóma um stöðu íslenska skólakerfisins á þeim þáttum sem eru til umfjöllunar og möguleg viðbrögð.
Gert er ráð fyrir ritrýndum greinum í samræmi við kröfur TUM um form og frágang, sjá leiðbeiningar um framsetningu hér:  https://tum.hi.is/leidbeiningar/ .

Sérritið kemur út í prentaðri útgáfu sem verður dreift til áskrifenda og birtist einnig samtímis í opnum aðgangi á vef tímaritsins.

Tímalína: 

1. janúar 2027: skil á 100 – 150 orða ágripi sem sendist á netfangið tum@hi.is

1. febrúar  2027: svar frá ritstjórn um samþykki eða synjun

1. júní 2027: skil á lokahandriti

Desember 2027: útgáfa sérrits

 

Almennt rit TUM

Fyrra rit ársins er almennt rit sem kemur út á prenti í júní 2027

Til að grein nái að birtast í vorhefti þarf hún að berast ritstjórum fyrir 31.desember 2026.

Fræðafólk sem vinnur að rannsóknum sem tengjast uppeldi og menntun er hvatt til senda inn handrit í almennt rit. Handrit að greinum skulu send í tölvupósti á netfangið tum@hi.is.

Almennar fyrirspurnir mega berast til Önnu Bjarnadóttur verkefnastjóra (annabjarnadottir@hi.is) eða til ritstjóranna sjálfra.

Ritstjórar tímaritsins eru Anna Kristín Sigurðardóttir (aks@hi.is) og Sigríður Margrét Sigurðardóttir (sigridurs@unak.is).