Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða hindranir mæta fullorðnu fólki sem hefur hug á að ljúka námi á framhaldsskólastigi. Tekin voru viðtöl við átta einstaklinga á aldrinum 25–30 ára sem stunda nám á vegum framhaldsfræðslunnar og eru í aðfaranámi. Í frásögnum þeirra vógu aðstæðu- og stofnanabundnar hindranir mun þyngra en viðhorfsbundnar hindranir. Helsta hindrun nemendanna var fjármögnun námsins þar sem unga fólkið býr við þröngan fjárhag og er með fjölskyldu á framfæri. Flókið reyndist að samþætta fjölskyldulíf og vinnu með námi og það skapaði mikið álag í lífi þess. Einnig kom fram að upplýsingar um nám og fjárstuðning í boði eru oft óljósar og viðmælendur töldu að framboð og skipulag náms kæmi ekki nægjanlega til móts við þarfir þeirra fyrir stuðning og sveigjanleika. Þátttakendur sýndu frumkvæði og þrautseigju við að yfirstíga margvíslegar hindranir sem þeir mættu á menntaveginum.

Hvatinn að rannsókninni er ekki síst sá að stjórnvöld hafa sett markmið um hærra menntunarstig þjóðarinnar en afar hægt gengur að ná þeim markmiðum. Rannsóknin getur því nýst stjórnvöldum við stefnumótun og menntastofnunum og aðilum fullorðinsfræðslu við að fækka stofnana- og aðstæðubundnum hindrunum á vegi fullorðinna námsmanna.

Höfundar: Elín Sif Welding Hákonardóttir, Sif Einarsdóttir, Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir og Gestur Guðmundsson

► Sjá grein

Um höfunda

Elín Sif Welding Hákonardóttir (elinsifw@gmail.com) lauk BA-prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 2014 og MA-prófi í náms- og starfsráðgjöf frá sama skóla 2016. Hún var í vettvangsnámi á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og að námi loknu starfaði hún á Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Hún starfar nú sem verkstjóri í fangelsinu á Hólmsheiði.

Sif Einarsdóttir (sif@hi.is) er prófessor við námsbraut í náms- og starfsráðgjöf á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Hún er með doktorsgráðu í ráðgefandi sálfræði frá University of Illinois, Champaign – Urbana. Hún hefur stundað rannsóknir á starfsáhuga fyrst og fremst en einnig á náms- og starfsferli ólíkra samfélagshópa.

Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir (gigja@frae.is) starfar sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Hún lauk MA-gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands 2006 og diplóma í sömu grein frá Háskólanum í Þrándheimi í Noregi 1991. Hún hefur rannsakað einelti meðal framhaldsskólanema og hefur verið leiðbeinandi í MA-rannsóknum sem tengjast ráðgjöf til fullorðinna námsmanna.

Gestur Guðmundsson (gesturgu@hi.is) er prófessor í félagsfræði menntunar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann er með doktorsgráðu frá Kaupmannahafnarháskóla 1991, hefur starfað sem lektor við Danmarks Pædagogiske Universitet og sem prófessor við Syddansk Universitet, en hefur verið prófessor við Kennaraháskóla Íslands og síðar Menntavísindasvið Háskóla Íslands síðan 2005. Hann hefur einkum fengist við rannsóknir á menningu og menntun ungmenna.

Efnisorð: ævinám; fullorðinsfræðsla; hindranir; fullorðnir nemendur; aðþrengt frumkvæði