AFBURÐANEMENDUR: SKULDBINDING TIL NÁMS OG SKÓLA, TÓMSTUNDAIÐKUN OG ÞÖRF FYRIR NÁMSRÁÐGJÖF
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort nemendur sem næðu afburðaárangri í námi væru ólíkir öðrum nemendum framhaldsskóla með tilliti til skuldbindingar til náms og skóla, þarfar fyrir námsráðgjöf og tómstundaiðkunar. Spurningalisti var lagður fyrir 2.504 nemendur á 17. til 20. aldursári í öllum framhaldsskólum landsins árið 2007. Nemendur sem náðu afburðaárangri reyndust hafa meiri metnað […]



