Hugmyndir um föður- og móðurhlutverkið skipta meginmáli fyrir stöðu og möguleika karla og kvenna. Samfélagslegir þættir þeirra hlutverka eru breytingum háðir og hvíla meðal annars á þeim félagslegu römmum sem konum og körlum eru settir og samfélagslegri orðræðu. Í þessari grein er fjallað um það hvernig föðurhlutverkið birtist í bókum og bæklingum sem út komu á Íslandi frá 1846 til 2010 og fjalla um meðgöngu, fæðingu og umönnun ungbarna. Þrjú megintímabil birtast, sem einkennast af fjarveru föður, aðstoðarmannsstöðu hans og loks virkri þátttöku í ferlinu. Jafnframt má sjá að faðirinn er þó aldrei jafngildur umönnunaraðili, hann er á hliðarlínunni en móðirin er hið sjálfgefna foreldri.

Höfundur: Ingólfur V. Gíslason

Sjá grein

Um höfundinn

Ingólfur V. Gíslason er doktor í félagsfræði og dósent í þeirri grein við félags- og mannvísindadeild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hans hefur fyrst og fremst verið tengt stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, karlmennsku og áhrifum fæðingarorlofs. Að auki hefur hann fjallað um ofbeldi og samhygð.

Efnisorð: feður; uppeldisrit; kyn; kynhlutverk