Börm sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi eiga rétt á skólagöngu og viðeigandi menntun eins og önnur börn. Engu að síður hefur hvorki verið samræmd né skýr stefna um það hvernig menntun barna í þessari stöðu skuli háttað hér á landi. Markmið rannsóknarinnar er að lýsa og greina upplifun og reynslu barna og foreldra sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi af menntun og skólagöngu hérlendis. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við 12 börn og foreldra þeirra síðla árs 2015.

Niðurstöðurnar sýna að skólaganga, menntun og félagsleg samskipti hafa jákvæð áhrif á sálfélagslega vellíðan barnanna, til dæmis töldu foreldrarnir sem rætt var við að skólaganga, menntun og félagsleg samskipti hefðu dregið úr leiða, áhyggjum og aðgerðaleysi barnanna. Mikilvægt er að kennarar séu vakandi fyrir sérstökum þörfum barna með flóttabakgrunn og að þeir fái viðeigandi fræðslu og stuðning til þess að koma til móts við þær.

Höfundar: Helga Guðmundsdóttir, Geir Gunnlaugsson og Jónína Einarsdóttir

Sjá grein

Um höfunda

Helga Guðmundsdóttir starfar sem verkefnastjóri í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd hjá Rauða krossinum á Íslandi. Hún lauk B.Sc. í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og M.A. í þróunarfræðum frá sama skóla árið 2016.

Geir Gunnlaugsson er barnalæknir og prófessor í hnattrænni heilsu við Félags- og mannvísindadeild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Geir er með doktorspróf í barnalækningum og meistarapróf í lýðheilsuvísindum frá Karolinska institutet í Stokkhólmi. Rannsóknarsvið eru meðal annars brjóstagjöf, ofbeldi gegn börnum, smitsjúkdómar og ýmsir þættir heilsugæslu og forvarnarstarfs á Íslandi, í Gíneu-Bissá og víðar í Afríku sunnan Sahara.

Jónína Einarsdóttir er prófessor í mannfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, með doktorspróf í mannfræði frá Stokkhólmsháskóla (2000). Rannsóknarsvið eru meðal annars mannfræði barna, heilsumannfræði og þróunarfræði. Hún hefur meðal annars stundað rannsóknir á viðbrögðum við barnadauða og mansali barna í Gíneu-Bissá og viðbrögðum við fæðingu fyrirbura, ofbeldi gegn börnum og siðnum að senda börn í sveit á Íslandi.

Efnisorð: börn, alþjóðleg vernd; foreldrar; menntun; skóli; hælisleitendur