""

Sigrún Aðalbjarnardóttir er prófessor emeritus í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (frá 1. ágúst 2019). Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1969 og stúdentsprófi frá sama skóla ári síðar. Hún lauk B.A.-prófi í uppeldisfræði frá Háskóla Íslands 1983 og meistaraprófi 1984 og doktorsprófi 1988 frá Harvardháskóla í Bandaríkjunum. Sigrún hefur kennt við Háskóla Íslands síðan 1988. Kennsla hennar hefur aðallega verið á sviði þroskasálfræði, áhættuhegðunar og seiglu ungs fólks auk borgaravitundar þess í lýðræðisþjóðfélagi.

Rannsóknir Sigrúnar beinast að margvíslegum þroska barna og ungmenna, líðan þeirra, námsgengi og áhættuhegðun. Jafnframt beinast þær að því hvernig hlúa megi að þroska og velferð barna og ungmenna heima og heiman. Sigrún hefur staðið að þessum rannsóknum með samstarfsfólki sínu hér á landi á rannsóknastofunni Lífshættir barna og ungmenna. Einnig hefur hún unnið með fræðimönnum bæði við Harvardháskóla, Graduate School of Education (HGSE) og í evrópska netsamvinnuverkefninu Children’s Identity and Citizenship in Europe (CiCe).Sigrún hefur verið afar afkastamikill fræðimaður og birt fjölda ritrýndra greina bæði hérlendis og erlendis. Þá hefur hún skrifað nokkrar bækur, þar á meðal bækurnar Lífssögur ungs fólks: Samskipti, áhættuhegðun, styrkleikar (Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2019) og Virðing og umhyggja: Ákall 21. aldar (Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2007).

Sigrún hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars frá Háskóla Íslands fyrir „lofsvert framlag til rannsókna“ og frá Saman-hópnum fyrir „vel unnin fræðistörf og gagnlegar rannsóknir í þágu foreldra og barna“. Auk þess hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu „fyrir störf í þágu uppeldisvísinda og menntunar“.

Höfundur: Björg Guðlaugsdóttir

►Sjá grein

Um höfundinn

Björg Guðlaugsdóttir (bjg32@hi.is) lauk B.A.-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Hún leggur nú stund á meistaranám í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands og starfar sem aðstoðarframleiðandi á fréttastofu RÚV. Helstu faglegu áhugamál hennar eru fjölmiðlar, hlutverk þeirra og þau áhrif sem þeir geta haft, en ekki síður uppeldi, menntun og mannlegt eðli. Þessi tvö áhugamál hefur hún fléttað saman í námi sínu þegar það hefur átt við.

Efnisorð: Sigrún Aðalbjarnardóttir, viðtal