Meginmarkmið þessarar greinar er að skoða hvernig aldagamlar hugmyndir um
mikilvægi grenndarnáms í skólum hafa skilað sér inn í menntun kennaranema.
Steingrímur Arason var merkur umbótasinni í menntamálum á fyrri hluta tuttugustu
aldar. Hann, ásamt fleirum, setti fram skýrar tillögur um mikilvægi þess að í
skólakerfinu sé unnið með félagslegt og náttúrulegt umhverfi barnsins og lagði
áherslu á útivist og vettvangsferðir í nærumhverfi. Þeim tillögum eru gerð nokkur
skil í fyrri hluta þessarar greinar til þess að undirstrika að aðferðir nútímalegs
grenndarnáms og grenndarkennslu eru ekki nýjar í íslensku skólaumhverfi.
Í seinni hluta greinarinnar er nútíminn viðfangsefnið. Annars vegar er lýsing
á nemendaverkefni þar sem sett er fram vettvangsferð fyrir leikskólabörn um
nærsvæði Hóla í Hjaltadal og hins vegar lýsing á útikennsluþjálfun kennaranema
við HA í námskeiði sem heitir Grenndarkennsla. Báðum lýsingunum er ætlað að
opna augu verðandi kennara fyrir þeim ótal tækifærum sem þeir hafa hver í sinni
heimabyggð til þess að vinna með þroska nemenda í náttúrulegu, manngerðu og
menningarlegu umhverfi. Niðurstaðan er sú að gamlar hugmyndir um mikilvægi
grenndarnáms í skólum hafa skilað sér inn í menntun kennaranema nú á dögum.

Höfundar: Bragi Guðmundsson og Brynhildur Bjarnadóttir

Sjá grein hér

Efnisorð: grenndarfræði, grenndarkennsla, náttúrulegt og menningarlegt umhverfi, útikennsla, vettvangsferðir