Markmið þessarar greinar er að fjalla um algilda hönnun (e. universal design) í fræðilegu samhengi og með skírskotun í rannsóknir höfunda. Sjónum er einnig beint að stefnumótandi skjölum um algilda hönnun hér á landi. Algild hönnun er byggð á gildum um jafnræði og jafna möguleika til þátttöku í samfélaginu. Lögð er áhersla á að koma til móts við mannlegan margbreytileika, það er fólk með mismunandi eiginleika, hæfni og takmarkanir. Framan af beindust áherslur algildrar hönnunar fyrst og fremst að manngerðu umhverfi en í auknum mæli er nú einnig litið til félagslegs umhverfis, stefnumótunar, verklags og viðhorfa. Enn fremur hefur áhersla á notagildi umhverfis, vöru og þjónustu aukist. Síðustu ár hafa mannréttindaáherslur einkennt umfjöllun um hugtakið og með innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafa hérlend stjórnvöld lýst yfir stuðningi við algilda hönnun í íslensku samfélagi. Þótt hér sé fyrst og fremst fjallað um hugtakið í tengslum við fötlun hefur það mun víðtækari skírskotun, eins og fram kemur í greininni.
Höfundar: Snæfríður Þóra Egilson, Sigrún Kristín Jónasdóttir
Efnisorð: algild hönnun; efnislegt og félagslegt umhverfi; aðgengileiki; notagildi; jafnræði; stefnumótun
Sjá grein hér