Markmið rannsóknarinnar sem grein þessi fjallar um er að öðlast skilning á veruleika tveggja fámennra framhaldsskóla utan höfuðborgarsvæðisins, gildi þeirra í nærsamfélaginu, stöðu þegar kemur að samkeppni um nemendur og leiðum til að styrkja tilvist sína, með staðarsamhengi þeirra í huga. Greinin er byggð á viðtölum við stjórnendur, kennara og nemendur í skólunum tveimur og varpar því ljósi á viðfangsefnið frá mismunandi sjónarhornum. Niðurstöður benda til þess að skólarnir séu mikilvægir samfélaginu, enda þjóna þeir nemendum á svæðunum, halda uppi menntunarstigi og eru með stærri vinnustöðum í viðkomandi byggðarlögum. Reynt var að virkja tengsl við atvinnulíf við skipulag námsframboðs og kennslu og nærumhverfið og náttúran var nýtt til að dýpka nám nemenda og tengja það við raunveruleikann. Viðmælendur bentu á ýmsar áskoranir sem tengdust smæð og staðsetningu skólanna, einkum út frá rekstrarforsendum og námsframboði. Í framhaldsskólaumhverfi sem gerir ráð fyrir að skólar keppi um nemendur er ljóst að báðir skólarnir voru í brothættri stöðu og þurftu stöðugt að leita nýrra tækifæra til að viðhalda nemendafjölda.
Höfundar: Valgerður S. Bjarnadóttir, Guðrún Ragnarsdóttir
Efnisorð: framhaldsskólar; dreifðar byggðir; samkeppni og markaðsvæðing; staðarsamhengi; félagslegt réttlæti