Fjölmiðlar ráða ekki aðeins miklu um það hvaða málefni fá athygli heldur einnig hvernig þau eru metin í samfélaginu. Á undanförnum árum hefur umfjöllun um leikskólastarf á Íslandi aukist, og áhersla hefur að mestu verið lögð á áskoranir og vanda innan starfsgreinarinnar. Slík framsetning getur haft áhrif á ímynd starfsins. Í þessari rannsókn eru viðhorf leikskólakennaranema til fjölmiðlaumfjöllunar um leikskólastarf skoðuð og kannað hvaða þýðingu þeir telja að hún hafi fyrir eigin líðan og væntingar, sem og fyrir sýn almennings á starfið. Rannsóknin er byggð á svörum úr spurningakönnun meðal 100 leikskólakennaranema í tveimur háskólum. Niðurstöðurnar benda til þess að nemendur upplifi fjölmiðlaumfjöllun að mestu neikvæða og þeir lýsa áhyggjum af áhrifum hennar á eigin líðan og framtíðarsýn í starfi. Jafnframt telja þeir að umfjöllunin hafi áhrif á viðhorf almennings og dragi úr virðingu fyrir fagmennsku leikskólakennara. Þá kemur fram að oft sé frekar litið á leikskóla sem þjónustustofnanir fyrir foreldra og vinnumarkað en menntastofnanir.

Höfundar: Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, Svava Björg Mörk og Samuli Ranta

Efnisorð: leikskólakennaranemar, leikskólar, fjölmiðlaumfjöllun, fagvitund

Lesa grein

Doi númer: https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.5