Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf og reynslu háskólakennara af notkun gervigreindarverkfærisins ChatGPT í kennslu og rannsóknum, með hliðsjón af TAMlíkaninu (e. Technology Acceptance Model). Megindleg og eigindleg gögn voru greind út frá svörum 23 kennara við spurningakönnun. Niðurstöðurnar benda til þess að
flestir kennarar telji það gagnlegt að nota ChatGPT í kennslu og rannsóknum. Margir þeirra höfðu þó áhyggjur af ChatGPT-notkun nemenda, fræðilegum heilindum og áreiðanleika verkfærisins. Viðhorf kennaranna til ChatGPT mótast meðal annars af gagnsemi verkfærisins og einfaldleika í notkun þess, svo og stuðningi og fræðslu sem þeim býðst.
Niðurstöðurnar benda til þess að mikilvægt sé að háskólasamfélagið þrói stefnu um notkun gervigreindarverkfæra og efli gervigreindarlæsi (e. artificial intelligence literacy/AI-literacy) til að stuðla að ábyrgri og skapandi notkun þeirra. Jafnframt er mikilvægt að veita kennurum og nemendum stuðning til að nota tæknina á ábyrgan og árangursríkan hátt.
Höfundar: Jórunn Elídóttir og Sólveig Zophoniasdóttir
Efnisorð: ChatGPT, háskólakennarar, háskólastarf, skapandi gervigreind, TAM-líkan






