Þessari grein er ætlað að draga fram með skýrum hætti hvernig íslenskt menntakerfi getur brugðist við hnignandi frammistöðu nemenda í lesskilningshluta PISA og undirbúið þá betur fyrir áframhaldandi nám og virka þátttöku í samfélaginu. Færð eru rök fyrir því að tækifæri til framfara liggja í skólastarfi, með aukinni áherslu á vandaða og markvissa lestrarkennslu og læsiseflandi viðfangsefni með vel völdum námsorðaforða, sem leiðir til djúps lesskilnings nemenda. Slíkur djúpur skilningur krefst færni í að finna upplýsingar í margs konar textum um áhugaverð samfélagsleg álitamál, greina, álykta, meta og taka afstöðu í rökræðum og rituðu máli.
Hreyfiafl til framfara liggur hjá menntayfirvöldum sem þurfa að tryggja að kennarar fái fræðslu, stuðning og aðstæður til að veita öllum börnum og ungmennum mál- og læsiseflandi skólastarf.
Höfundur: Sigríður Ólafsdóttir
Efnisorð: lestrarkennsla, lesfimi, lesskilningur, námsorðaforði, læsiseflandi skólastarf